top of page

Hagnýt ráð

Málskostnaðartrygging

Flestir hafa heimilistryggingu og algengt er að í slíkum tryggingum sé innifalin réttaraðstoðartrygging. Slíkum tryggingum er ætlað að standa straum af málskostnaði í heild eða að hluta, sé leitað aðstoðar lögmanns. Mikilvægt er að kynna sér tryggingar sínar vel en í skilmálum trygginga er tekið fram hvers konar mál geta mögulega átt undir réttaraðstoðartryggingu og hver ekki. 

Gjafsókn

Í sumum tilvikum getur einstaklingur átt rétt á svokallaðri gjafsókn (eða gjafvörn). Ef einstaklingur hefur lágar tekjur getur viðkomandi átt rétt á gjafsókn til að standa straum af málskostnaði. Einnig geta einstaklingar átt rétt á gjafsókn varði mál þeirra almannahagsmuni. Ef gjafsókn er möguleg er mikilvægt að sótt sé um hana svo þessi réttindi fari ekki forgörðum.

 

Sum mál eru þess eðlis að ekki þarf að sækja um gjafsókn heldur er hún lögbundin. Gjafsókn er lögbundin í faðerinsmálum þar sem barn höfðar faðernismál, í véfengingarmálum þar sem barn höfðar mál til véfengingar á faðerni sínu og í lögræðismálum, sem eru dómsmál vegna sviptingar á lögræði einstaklings.

Í sumum tilvikum þarf að sækja um gjafsókn sem þó er lögbundin - sem þýðir að hún er veitt sé á annað borð sótt um gjafsókn. Þetta á til dæmis við í málum þar sem einstaklingur fer fram á bætur fyrir handtöku, leit á manni eða í húsi, hald á munum, rannsókn á heilsu manns, gæsluvarðhalds eða vegna annarra aðgerða sem hafa frelsissviptingu í för með sér.

Lögbundin gjafsókn er einnig til staðar sé sótt um slíka gjafsókn, í málum á grundvelli barnaverndarlaga. Sem dæmi um málefni sem barnaverndarlög fjalla um má nefna fóstur barns, vistun barns og forsjársviptingu.​

Sakamál

Einstaklingar sem þurfa að taka til varnar í sakamáli eiga alltaf rétt á verjanda.

 

Í sumum tilvikum eiga brotaþolar rétt á aðstoð réttargæslumanns til að setja fram bótakröfu, t.d. vegna grófra ofbeldisbrota og í kynferðisbrotamálum. Þá ber lögreglu ávallt að tilnefna brotaþola sem er yngri en 18 ára þegar rannsókn máls hefst réttargæslumann.

Sé réttargæslumaður tilnefndur hjá lögreglu eða skipaður fyrir dómi, greiðist þóknun réttargæslumanns úr ríkissjóði

bottom of page